Hálsakots hundarnir
eru snyrtir með:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Framvegis verður hægt að lesa fréttir af Hálsakots voffunum: HÉR


23-24. júní var haldin sumarsýning HRFÍ í Víðidal. Okkar hundum gekk mjög vel á sýningunni en hún Phoebe varð besti hundur tegundar með sitt fyrsta íslenska meistarastig auk þess sem hún vann svo tegundahóp 9. Herkúles varð besti rakki og annar besti hundur tegundar og saman urðu þau svo fjórða besta par laugardagsins. Patti sem er hvolpurinn þeirra varð besti papillon hvolpur 6-9 mánaða og endaði svo sem þriðji besti hvolpur sýningar af stórum hóp hvolpa. Sámur hálfbróðir hans varð annar besti papillon rakkahvolpur, einnig með heiðursverðlaun.

Á sunnudeginum var svo Ollie sýndur og varð hann besti hundur tegundar sem og vann sinn tegundarhóp. Hann varð einnig besti öldungur (7-10 ára) sýningar og þriðji besti hundur sýningar!

Karen stóð sig líka vel í ungum sýnendum með Ollie og varð fjórða.

Við erum í skýjunum yfir frábærri helgi og óskum nýju fjölskyldum Patta og Sáms innilega til hamingju með strákana sína, þeir stóðu sig báðir virkilega vel.


Þann 9. júní varð Amber besti hundur tegundar á meistarastigssýningu í Vänersborg, hún fékk þar með þriðja sænska meistarastigið sitt og varð sænskur meistari. Þar sem hún er líka með eitt danskt meistarastig þá nægir það til að gera hana að dönskum meistara líka. Nú er hún komin í einangrun í Höfnunum ásamt dóttur sinni Minnie, það verður frábært að fá þær mæðgur heim þann 14. júlí.


Þann 29. apríl eignaðist Hálsakots Little Miss Surprise 8 hvolpa! 7 eru á lífi, 4 tíkur og 3 rakkar. Stoltur faðir hvolpanna er Muffin okkar. Sjá nánar á Englakots heimasíðunni.


Þann 30. mars fæddist fyrsta afghan gotið á Íslandi, það var Chanel (Xciting Stop ´N Stare) sem eignaðist 10 hvolpa, Ollie er pabbinn.
Helgina 3-4 mars var alþjóðleg vorsýning HRFÍ. Okkar hundum gekk vel á sýningunni en í þetta skiptið sýndum við alla rakkana og enga tík. Á laugardeginum varð Ollie besti afghan tegundar með cacib og annar í tegundarhóp 10. Daginn eftir kom hann og keppti um besta öldung sýningar í yngri flokk sem hann vann. Herkúles varð besti papillon rakki tegundar með cacib og Muffin varð fjórði besti rakki. Rasmus fékk fyrstu einkunn og annað sæti í sínum flokk.

Gleðilegt nýtt ár og velkomin á nýja heimasíðu Hálsakots papillon. Árið 2006 var mjög viðburðaríkt, við fjölskyldan byrjuðum árið á Spáni ásamt voffunum okkar, Ollie, Amber og Phoebe.
Pippí, Beauty, Þruma Þöll og Herkúles voru í pössun heima á Íslandi.

Snemma árs tókum við þá erfiðu ákvörðun að láta Pippí á annað heimili. Það var vegna mikilla slagsmála milli hennar og Beauty systur hennar. Pippí fékk frábært heimili sem henni líður mjög vel á og er dekruð út í ystu æsar.

Ásta María var í Englandi að læra á hundasnyrtistofu og Binni að passa þríeykið í Danmörku þegar okkur bauðst svo önnur tík, það var hún Ída, það reyndist ómögulegt að segja nei við því boði og þann 1. maí flutti Ásta María með Ollie, Amber og Phoebe inn á kennel Candygolds þaðan sem Ída er og ætlaði að vera þar í um tvo og hálfan mánuð eða þar til Ída yrði nógu gömul til að fljúga heim. Sú dvöl lengdist síðan í fjóra mánuði og eftir frábært sumar í Svíþjóð bættust einnig við tveir lánsrakkar til að fljúga með heim, þeir Muffin og Rasmus sem og hvolpurinn Míró sem flutti inn í Englakots fjölskylduna eftir að vera samferða okkur heim. Það var því frekar sérstök sjón að sjá stóðið á Kastrup á leið í flug.

Rasmus er bara hvolpur ennþá en Muffin er orðinn þriggja ára gamall og var augnskoðaður og hnéskeljaskoðaður í Svíþjóð rétt áður en við fórum heim. Hann var svo paraður við Phoebe í haust og þann 12. desember fæddist fyrsta afkvæmi Muffins á Íslandi, það var rakki.

Amber varð eftir í Svíþjóð og var pöruð þar við ungan og efnilegan rakka og eignaðist þann 14. des eina fallega tík. Það er erfitt að geta ekki fylgst með henni öðruvísi en á myndum og hlakkar okkur mjög mikið til að hitta þær mæðgur fljótlega. Amber er sárt saknað enda frábær tík með mikinn persónuleika og getum við ekki beðið eftir að hún komi heim í hópinn sinn aftur.

Fyrsta sýningin eftir að gengið flutti heim var í október og gekk rosalega vel. Allir fengu fína dóma, Herkúles varð besti rakki tegundar með cacib og ásamt Phoebe besta par sýningar. Phoebe varð þriðja besta tík með vara cacib.
Ásta sýndi einni Enyu sem varð önnur besta tík og Míró sem varð besti hvolpur tegundar fyrir Englakots.
Ollie gekk líka mjög vel, hann varð besti hundur tegundar með cacib, vann tegundahóp 10 og varð annar besti öldungur sýningar. Hann varð þar með íslenskur og norðurlandameistari.

  © 2007, Hálsakots papillon